Halaleikhópurinn

Aðalfundur Halaleikhópsins 2026 verður haldinn miðvikudaginn 20. maí kl. 20:00 í Halanum Hátúni 12

Dagskrá aðalfundar:

-          Kosning fundarstjóra og fundarritara.

-          Inntaka nýrra félaga.

-          Skýrsla stjórnar.

-          Ársreikningar lagðir fram.

-          Afgreiðsla tillagna sem borist hafa fundinum, svo sem lagabreytingar.

Stjórn leggur til eftirfarandi breytingar á lögum Halaleikhópsins:

Í 7. grein stendur: Reikningsárið er leikárið, frá 1. apríl til 31. mars.
Yrði eftir breytingu: Reikningsárið er almanaksárið.

Í 4. grein stendur: Skuldlausir félagsmenn hafa ókeypis aðgang að aðalsýningu ársins og njóta afsláttar af námskeiðum sem Halaleikhópurinn heldur.
Yrði eftir breytingu: Skuldlausir félagsmenn njóta afsláttar af námskeiðum sem Halaleikhópurinn heldur.

-          Starfsemi næsta leikárs.

-          Kosning stjórnarmanna, varamanna í stjórn og tveggja skoðunarmanna reikning.

-          Önnur mál, þ. á m. ákvörðun um félagsgjald.

 

Kosningar:

Að þessu sinni þarf að kjósa um formann, ritara, varaformann til eins árs og tvo varamenn. Einnig þarf að kjósa tvo skoðunarmenn reikninga. Eru komin framboð í þessi embætti en stjórn hvetur félaga til að gefa kost á sér í þau störf sem þarf að kjósa um. Þannig geta félagsmenn fengið betri innsýn í starfsemina.

Einnig vekjum við athygli á því að einungis skuldlausir félagar geta kosið.

Nýir félagar og gestir velkomnir.