Halaleikhópurinn

Kaffileikhús - Aukasýning

Mánudaginn annan í Hvítasunnu 1. júní nk. kl. 17.00. Líf og fjör hefur verið í Halanum undanfarnar vikur. Innanfélagsmenn hafa tekið höndum saman og æft stíft, bæði stuttverk og tónlist. Nokkrar húsmæður tóku sig til og gerðu helling af brauðtertum, skúffukökum og kleinum sem rann ljúft í gesti Kaffileikhússins 21. maí sl.

Það var uppselt og fólk varð frá að hverfa á fimmtudaginn 21. maí, svo ákveðið hefur verið að skella upp aukasýningu á annan í Hvítasunnu 1. júní kl. 17.00.

Miðaverð er aðeins 1000 kr. kaffi og kökur innifalin.
Léttir drykkir verða seldir í sjoppunni.
Miðasala í síma 862-4276. Ath. að vissara er að panta miða.

Sýnd voru þrjú stuttverk, uppistand og fjögur tónlistaratriði.

Fyrstir á svið voru Tobias og Daníel með frumsamin lög. Þeir eru Daníel Þórhallsson og Tobias Hausner.

Hjólastólasveitin flutti nýtt frumsamið rúllandi uppistand sem þau kalla Kókosbollu hó ó pónó. Leikstjóri: Ágústa Skúladóttir.

Hjólastólasveitina skipaði að þessu sinni:
Guðríður Ólafsdóttir
Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir
Leifur Leifsson
Ása Hildur Guðjónsdóttir var hljóðmaður

Tvíleikur fyrir höfund og leikara

Eftir Benóný Ægisson. Leikstjóri: Gunnar Gunnarsson, Gunsó.

Leikarar

Höfundur
Gunnar Ingi Gunnarsson
Leikari
Daníel Þórhallsson

Nafla-Jón flutti nokkur lög.
Einar Andrésson og Hlynur Þór Agnarsson.

Bara Tjilla

Eftir Jónínu Leósdóttur. Leikstjóri: Gunnar Gunnarsson, Gunsó.

Leikarar

Jakobína
Guðríður Ólafsdóttir
Soffía
Auður Birgisdóttir
Embla Sif
Sóley Björk Axelsdóttir

Hljómsveitin Lister flutti nokkur lög og tók inngang í næsta verk.

Jón Guðni, Björn Kr., Gísli Freyr, Skarphéðinn og Eyþór.

Miðvikudagur í Helvíti

Eftir Ármann Guðmundsson. Leikstjóri: Gunnar Gunnarsson, Gunsó.

Leikarar

Lögfræðingur
Kristinn Sveinn Axelsson
Yfirpúki
Gunnar Freyr Árnason
Púki
Magnús Addi Ólafsson

Dúó Gísla blikk spilaði svo meðan áhorfendur yfirgáfu salinn.

Aðrir starfsmenn sýningarinnar

Ása Hildur Guðjónsdóttir
Allt í öllu
William Valgeir Wiley
Ljósa og tæknimaður
Magnús Addi Ólafsson
Ljósa og tæknimaður
Hanna Margrét Kristleifsdóttir
Förðun
Elísa Ósk Halldórsdóttir
Leikskrá, auglýsing, förðun og margt fleira
Einar Jörgensen
Smíðar
Friðfinnur Árni Kjærnested
Smíðar
Kristín M. Bjarnadóttir
Búningar, bakstur o.fl.
Einar Andrésson
Leikmynd
Stefanía Björk Björnsdóttir
Aðstoð á æfingum og förðun
Kristín R. Magnúsdóttir
Ýmislegt stúss
Andri Valgeirsson
Upptaka
Þröstur Steinþórsson
Upptaka
Sólberg R. Haraldsson
Sviðsmaður, aðstoð á æfingum
Tobias Hausner
Sviðsmaður
Arnar Ágúst Klemensson
Aðstoð á æfingum
Gunnar Freyr Árnason
Vinna við leikmynd
Friederike Andrea Hellelmann
Skiltagerð

Sérstakar þakkir fá

Sjálfsbjörg lsf.
Sjálfsbjargarheimilið
Guðjón Sigvaldason
Jonni töframaður
Sigrún Ósk Arnardóttir
Ingimar Atli Arnarson
Sjálfsbjörg á höfuðborgarsvæðinu
Öryrkjabandalag Íslands
Reykjavíkurborg