Skemmtidagskrá með ljóðum og leikþætti
Frumsýnt 19. feb. 1994

Leikþáttur
Ævintýri á gönguför í Þórsmörk eftir Guðrúnu Ásmundsdóttur, með leikatriðum og söngvum úr Ævintýri á gönguför eftir Hostrup í leikstjórn Guðrúnar Ásmundsdóttur.

Höfundar ljóða
Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir, Oddný Óttarsdóttir og Davíð Stefánsson frá Fagraskógi.
Verkstjórn og kynnir:
Guðmundur Magnússon.

Upphaf þessa verks var að Halaleikhópurinn hafði samband við Guðrúnu Ásmundsdóttur og réð hana til að vera með leiklistarverkefni til að hafa á boðstólnum vegna málþings um listsköpun fatlaðra í Gerðubergi 19. feb. 1994.
Fjölgaði nú töluvert virkum félögum og eru nú nær 20 leikendur í sýningunni Ævintýri á gönguför í Þórsmörk eftir Guðrúnu og leikhópurinn með leikatriði og söngvum úr 1. þætti Ævintýris á gönguför eftir Hostrup.

Það þarf varla að taka fram að 19. febrúar var hreint brjálað veður um morguninn þegar Halaleikhópurinn sýndi sitt! Það var komið hið fræga Halaveður, en það gerir næstum ávallt vitlaust veður þegar hópurinn frumsýnir.
Þar sem við eigum nú hið fallegasta leikhús þótti okkur synd að gefa ekki okkar dyggu áhorfendum tækifæri til að sjá þáttinn. Þátturinn er um 35 mínútur í flutningi, en með því að bæta við ljóðalestri og smá sprelli er komið heilt kvöld prógramm.


Ljóðalestur
- Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir les eigin frumsamin ljóð.
- Oddný Óttarsdóttir les eigin frumsamin ljóð.
- Ómar Bragi Walderhaug les ljóðið Messalína eftir Davíð Stefánsson frá Fagraskógi.
- Hulda Guðnadóttir og Jón Eiríksson flytja ljóðið Karl faðir minn eftir Jóhannes úr Kötlum.
- Ingólfur Örn Birgisson flytur Heilsukvæði eftir ókunnan höfund.

Leikendur og hlutverk þeirra
Allir eru tré nema Hulda, sem er blóm, en auk þess er:
Þakkir
Halaleikhópurinn þakkar öllum sem lagt hafa honum lið við að koma upp þessari sýningu.
Einkum viljum við þakka Hótel Sögu fyrir lán á ljósabúnaði og Grensásbakarí fyrir kökur og hlýjan hug.
Um sýninguna af vef mbl.is sjá hér.