Halaleikhópurinn tók þátt í stuttverkahátíðinni Margt smátt í Borgarleikhúsinu 23. okt. 2004. Við sýndum þar stuttverkið Portrett sem er eftir þá félaga Magnús Guðmundsson og Örn Axelsson sem kalla sig Tvíbjörn.
Þátttakendur
Leikarar
María Jónsdóttir
Selma Þorvaldsdóttir
Selma Þorvaldsdóttir
Leikstjórn
Kristinn Guðmundsson
Margt smátt
Stuttverkahátíðin Margt smátt er samstarfsverkefni Borgarleikhússins og Bandalags íslenskra leikfélaga og er þetta í annað sinn sem hún er haldin. Frumkvæðið að hátíðinni kemur frá Borgarleikhúsinu sem vill með þessum hætti kynna betur þetta sérstæða leiklistarform sem lítið hefur verið sinnt utan áhugaleikfélaganna hér á landi.
Eftirfarandi félög tóku þátt í Margt smátt
Leikfélag Seyðisfjarðar
Dagur myrkurs
Leikfélag Hafnarfjarðar
Dauðinn drepur á dyr
Á uppleið
Portrett
Forvitni
Hinir gullnu bogar hugrekkisins
Án mín
Hlýðni - Óhlýðni
Leikfélag Hafnarfjarðar
Kjallarabörnin
Afhverju láta fuglarnir svona?
Leikfélag Hafnarfj. & Mosf.sv.
Pörunardans hnífakastarans og skeggjuðu konunnar
23. október 2004