Hrakhólar 12
Höfundar: meðlimir Halaleikhópsins
Leikstjóri: Rúnar Guðbrandsson
Hrakhólar 12 er nýtt íslenskt samsköpunarverk sem meðlimir Halaleikhópsins hafa skapað saman undir leiðsögn Rúnars Guðbrandssonar leikstjóra og Kolbrúnar Daggar Kristjánsdóttur, sviðshöfundar.
Um er að ræða samsköpunarverk sem fjallar um íbúa fjölbýlishúss, ættingja þeirra og aðra óboðna gesti sem rápa inn og út, í óþökk Söndru umsjónarmanns fasteigna.
Þegar Helena listakona flytur inn á móður sína tímabundið, bankar fortíðin upp á, - og nágrannar sem vantar ýmist egg eða leiðsögn í lífinu. Helena hefur lifað, upplifað, brunnið út og risið upp. Hún er eins og fuglinn Fönix, nema með betri húmor en verri svefn.
Mun sveitastjórnin á Þórðarhöfn samþykkja hugmynd Helenu eða ætla þau að missa ferðamennina úr greipum sér?
Hvað gerist þegar Sandra tilkynnir á húsfundi um ástand hússins og hvað verður um Ástu sem er alltaf að bíða en fær engan frið fyrir Hallgerði stundakennara með jógadýnu sem hefur lifað af fjögur krabbamein, ADHD og samband við fótboltamann. Nú eða Borghildi hjá Neytendasamtökunum sem vill allt gera fyrir Sjonna bróður sinn, en hann vill enga hjálp og er í nöp við Silju sem er svo aumingjagóð og hleypir öllum inn, líka trúboðanum sem vill vísa íbúum leiðina heim, í gegnum dimman dal, óttist ei, þótt vasaljósið sé bilað.
Um leikstjórann
Rúnar nam upphaflega leiklist í Danmörku (Cafe Teaterets Dramaskole 1976-79) og starfaði þar sem leikari um árabil, með ýmsum leikhópum. Frekari þjálfun hlaut hann m.a. hjá Odin leikhúsinu í Holsterbro, hjá leikhópi Jerzy Grotowskis í Wroclaw í Póllandi, Dario Fo á Ítalíu, Jury Alschitz í Kaupmannahöfn og víðar, og Anatoly Vasiliev í Moskvu. Hann hefur einnig stundað þjálfun í Suzuki- og Viewpoints tækni hjá J. Ed Arisona og Emely Laureen hjá S.I.T.I Company, New York.
Rúnar lauk MA og MPhil gráðum í leiklistarfræðum og leikstjórn frá De Montfort háskólanum í Leicester á Englandi og hefur lokið fyrri hluta doktorsnáms í fræðunum. Hann hefur leikstýrt fjölda leiksýninga hérlendis og erlendis og fengist við leiklistarkennslu og þjálfun leikara víða í Evrópu.
Rúnar hefur samið nokkur leikverk, ýmist einn eða í samvinnu við aðra. Þau hafa öll verið sviðsett og sum gefin út í litlum upplögum. Hann hefur auk þess leikið fjölda hlutverka á sviði, í sjónvarpi og kvikmyndum og fengist við ýmis konar tilraunastarfsemi á vettvangi kvikmynda og gjörningalistar.
Rúnar hefur hlotið margvísleg verðlaun og viðkenningar fyrir störf sín, t.d. The Student Drama Festival Awards í Scarbourough 1997 og The Royal Shakespeare Company´s Summer Festival Awards 1999. Hérlendis hefur hann t.d þrívegis verið tilnefndur til menningarverðlauna DV 1984, 2001 og 2009 og í tvígang hefur hann verið tilnefndur sem höfundur ársins af íslensku sviðslistaverðlaununum, Grímunni, 2009 og 2011 og sem leikstjóri til sömu verðlauna 2009 og 2014. Leikhópur hans Lab Loki hefur einnig hlotið fjölda viðurkenninga og verðlauna gegnum tíðina.
Leikendur
Ásta
Sóley Björk Axelsdóttir
Bíbí / Helena
Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir
Borghildur
Lilja Þorgeirsdóttir
Hallgerður
Linda Sólveigar Guðmundsdóttir
Heiða
Friðrika Rósa Sigurbjörnsdóttir
Sandra
María Jónsdóttir
Silja
Hrafnhildur Kristbjörnsdóttir
Sjonni
Sigvaldi Búi Þórarinsson
Fólkið á bak við tjöldin
Handrit
Halaleikhópurinn
Búningar
Halaleikhópurinn
Leikmynd
Halaleikhópurinn
Hljóð og ljós
Arnar Ingvarsson
Vilhjálmur Hjálmarsson
Sýningastjórn
Stefanía Björk Björnsdóttir
Ljósmyndir
Gunnlöð Rúnarsdóttir
Leikskrá og kynningarefni
Hrafnhildur Kristbjörnsdóttir
Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir
Heimasíða
Páll Guðjónsson
Um Halaleikhópinn
Halaleikhópurinn er áhugaleikfélag, stofnað árið 1992 af fötluðu og ófötluðu fólki með leiklistarbakteríuna á háu stigi.
Félagið hefur sett upp ólík leikverk, gaman og drama, eftir erlend og íslensk leikskáld í aðstöðu sinni að Hátúni 12. Einnig hefur leikhópurinn sett upp fjölda verka sem hafa verið skrifuð sérstaklega fyrir hópinn.
Í fyrsta sinn í sögu félagsins skrifar hópurinn saman verk sem ber heitið Hrakhólar 12.
Myndir frá æfingum
Kveðja frá Bandalagi íslenskra leikfélaga
Halaleikhópurinn er aðili að BÍL, samtökum áhugaleikfélaga á Íslandi.
BÍL vinnur að þróun og eflingu leiklistar með því að stuðla að uppbyggingu og að halda á lofti gildi þeirrar reynslu sem fæst með samstarfi og í samneyti við annað fólk. Í þeim anda óskum við Halaleikhópnum til hamingju með sýninguna og ykkur, kæru áhorfendur, góðrar skemmtunar.
Stjórn og starfsfólk BÍL.
Sérstakar þakkir
Sérstakar þakkir Sjálfsbjörg lsh., Öryrkjabandalag Íslands, Sjálfsbjörg á höfuðborgarsvæðinu.
Halaleikhópurinn þakkar öllum, sem hafa lagt honum lið við að koma upp þessari sýningu með einum eða öðrum hætti.
