Stræti eftir Jim Cartwright
Leikstjóri: Guðjón Sigvaldason
Sýningin Sagan af Joey og Clark var frumsýnd 4. desember 2015
Í sögunni af Joey og Clark er litið inn á eitt heimilið við Strætið. Þetta er sjálfstætt verk úr strætinu sem ekki verður með í heildarverkinu sem við sýnum eftir áramót. Það er sýnt sem sjálfstætt stuttverk (ca 50 mín) . Sagan fjallar um ást samkynhneigðra, ungra manna, leit þeirra að lausn í hverfulum heimi og örlög þeirra á tímum kreppu og atvinnuleysis.
Orðfæri persónanna getur verið gróft og ekki fyrir viðkvæma.
Persónur og leikendur eru:
Joey | Guðbrandur Loki Rúnarsson |
Clark | Bjarki Fjarki Rúnar Gunnarsson |
Móðir Joey | Ásta Dís Guðjónsdóttir |
Myndir - Sagan af Joey og Clark
Kynningarstiklur
Um Eintöl:
Í Innlit í Stræti eru flutt „Eintöl“ þar sem við fáum nasaþef af persónuflóru verksins gegnum eintöl nokkurra íbúa strætisins.
Við hittum Skinnið sem er bulla með ofbeldisfulla fortíð en hefur nú snúist til dharma. Prófessorinn, misheppnaður rithöfundur, fjallar um bókina sem aldrei varð til. Þarna býr Valerie, einstæð móðir sem býr við kúgun og heimilisofbeldi og drýgir tekjurnar með betli. Þá birtist Mollý, dragdrottningarmóðir dragheimsins og líf hennar í dag. Jerry, smámunasamur fyrrverandi hermaður sem dagaði uppi einhversstaðar kemur fram. Scullery er svo sögumaðurinn sem tengir alla þessa einstaklinga. Allt þetta fólk er að undirbúa sig til að fara á krána að skemmta sér.
Orðfæri persónanna getur verið gróft og ekki fyrir viðkvæma.
Persónur og leikendur eru:
Scullery og sögumaður: | Hlynur Finnbogason |
Valerie / Louise: | Rut Másdóttir |
Prófessorinn/ pabbi Eddies / Sá sköllótti | Kristinn Sveinn Axelsson |
Molly: | Margret Guttormsdóttir |
Skinnið: | Snorri Emilsson |
Jerry / Roy /Brian: | Gunnar Gunnarsson, Gunsó |
Joey: | Guðbrandur Loki Rúnarsson |
Clark: | Bjarki Fjarki Rúnar Gunnnarsson |
Dor, Spúsa þess sköllótta: | Guðríður Ólafs Ólafíudóttir |
Helen /Mamma Joeys: | Ásta Dís Guðjónsdóttir |
Lesley / Alice | Hanna Margrét Kristleifsdóttir |
Carol / Linda | Katrín M. Elínborgardóttir |
Maudie / Marion | Margrét Eiríksdóttir |
Lane | Matthildur Kristmannsdóttir |
Bróðir Louise / Curt | Sigurður Ragnar Kristjánsson |
Brenda | Sóley Björk Axelsdóttir |
Fred | Örn Sigurðsson |
Brink/ Hermaðurinn | Alexander Ingi Arnarson |
Guðjón Sigvaldason leikstjóri
Guðjón útskrifaðist frá Mountview Theatre School í Bretlandi 1987. Hann hefur leikstýrt vel yfir hundrað leiksýningum víða um landið.
Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem hann vinnur með okkur hér í Halaleikhópnum, því á síðasta leikári vann hann með okkur sakamálaleikritið „Tíu litla strandaglópa“ og áður „Fílamanninn“, Kirsuberjagarðinn“ og „Gaukshreiðrið“ allt verk sem hafa unnið til verðlauna um allan heim, sem og að marka spor í ferli Halans, krafist hins ýtrasta af hópnum og fleitt honum á önnur svið. Enda var sýning okkar á Gaukshreiðrinu valin sú athygliverðasta árið 2008 og flutt við gífurlega góðar viðtökur í Þjóðleikhúsinu.
(Það hafa enn ekki, verið jafn margir áhorfendur í hjólastólum við nokkra sýningu þar, enda var allt aðgengi í leikhúsinu og gryfjan sérútbúin fyrir aðgengi fatlaðara einstaklinga í hjólastólum í tilefni þessa).
Í þetta sinn ákváðum við að takast á við enn eitt verðlaunaverk, „Stræti“ eftir Jim Cartwright, innsýn í heim neðanmálsfólks, sem gefur leikhópnum tækifæri á að kynnast enn annarri flóru af persónum, í þetta sinn frekar orðljótum og kannski ekki fyrir eyru viðkvæmra. Það er þó von okkar að þessi sýning fleyti hópnum áfram, gefi áhorfendum jafnframt tækifæri á að lifa sig inn í veröld, sem þeir hafa kannski ekki kynnst áður.
Vegleysi og firringu þeirra sem eru máttvana gagnvart því utanaðkomandi. En horfa þó til birtunnar við enda undirganganna í einlægri von. Sem og von okkar að Halaleikhópurinn standi fyrir sínu, nú sem áður og sýni að allt er öllum fært.
Guðjón Sigvaldason
Jim Cartwright
Jim Cartwright er virt, breskt leikritaskáld, fæddur árið 1958. Verk hans njóta alþjóðlegra vinsæla.
Stræti er fyrsta leikverk hans og var frumsýnt 1986. Það hefur unnið til fjölda verðlauna og verið umritað fyrir sjónvarp og sýnt á BBC.
Hann er þekktur fyrir að skrifa um raunveruleika og breiskleika með frekar grófu tungumáli lágstéttar breta
Jim Cartwright,
höfundur Strætis
Aðrir sem koma að sýningunni á einn eða annan hátt
Aðstoðarleikstjóri: | Margret Guttormsdóttir |
Aðstoðarmaður leikstjóra, miðapantanir ofl.: | Ása Hildur Guðjónsdóttir |
Ljósahönnun: | Vilhjálmur Hjálmarsson |
Framkvæmdastjóri: | Guðríður Ólafs Ólafíudóttir |
Leikmyndasmíði: | Arnar Stefánssson |
Búningar ofl.: | Etna Lupita |
Hljóð og hljóðkeyrsla, ofl.: | Einar Andrésson |
Aðstoð við leikmyndasmíði | Guðmundur G. Hreiðarsson |
Aðstoð við leikmyndasmíði | Hlynur Finnbogason |
Aðstoð við allt mögulegt: | Marteinn Jónsson |
Förðun: | Dagný Ósk Hermannsdóttir |
Ljósamaður umsjón tæknibúnaðar. | Jón Eiríksson |
Hljóðkeyrsla | Stefanía B. Björnsdóttir |
Ljósmyndari: | Grétar Már Axelsson |
Búningarl: | Hópurinn sjálfur |
Leikmunir | Hópurinn sjálfur |
Gjaldkeri, umsjón miðasölu, hönnun plakats fyrir Eintöl | Ólöf I. Davíðsdóttir |
Fjölmiðlafulltrúi: | Vilhjálmur Jón Guðjónsson |
Fjölmiðlafulltrúi: | Anna Kristine Magnúsdóttir |
Miðasöludama: | Sóley B. Axelsdóttir |
Miðasöludama: | Ólína Ólafsdóttir |
Miðasöludama: | Hekla Bjarnadóttir |
Hönnun veggspjalds og netaugl. fyrir Joey og Clark | Ása Hildur Guðjónsdóttir |
Upptaka: | Páll Guðjónsson |
Myndir - Eintöl
Kærar þakkir
Halaleikhópurinn þakkar öllum, sem hafa lagt honum lið við að koma upp þessari sýningu.
Makar og aðstandendur frá sértakar þakkir fyrir þolinmæði á æfingatímabilinu.
Styrktaraðilar