Aðalfundur Halaleikhópsins: 19. apríl 2022

Aðalfundur Halaleikhópsins 2022 verður haldinn þriðjudaginn 19. apríl kl. 20.00 í Halanum Hátúni 12.

Dagskrá aðalfundar:

1.    Kosning fundarstjóra og fundarritara.
2.    Inntaka nýrra félaga.
3.    Skýrsla stjórnar.
4.    Afgreiddir endurskoðaðir reikningar félagsins.
5.    Afgreiðsla tillagna sem borist hafa fundinum, svo sem lagabreytingar.
6.    Starfsemi næsta leikárs.
7.    Kosning í stjórn og varastjórn.
8.    Önnur mál

Kjósa þarf formann, ritara og tvo menn í varastjórn.


Núverandi stjórn skipa:
Formaður    Hanna Margrét Kristleifsdóttir kosin til 2022
Varaformaður    Stefanía Björk Björnsdóttir kosin til 2023
Gjaldkeri    Herdís Ragna Þorgeirsdóttir kosin til 2023
Ritari    Ása Hildur Guðjónsdóttir kosin til 2022
Meðstjórnandi    Kristinn Sveinn Axelsson kosinn til 2023

Varamenn kosnir til 2022 eru Þröstur Jónsson og Þröstur Steinþórsson
Varamaður kosin til 2023 er Guðríður Ólafs Ólafíudóttir

Skoðunarmaður reikninga eru:
Kristín Margrét Bjarnadóttir kosin til 2022.
Og Vilhjálmur Jón Guðjónsson kosinn til 2022.
Kjósa þarf 2 skoðunarmenn reikninga til 2 ára.

Við viljum hvetja félaga til að gefa kost á sér í þau störf sem þarf að kjósa um. Þannig geta félagsmenn fengið betri innsýn í starfsemina.

Við vekjum athygli á því að einungis skuldlausir félagar geta kosið.

Kaffiveitingar verða á fundinum.
Nýjir félagar velkomnir.

Kveðja Stjórnin