Aðalfundur Halaleikhópsins 2025

Aðalfundur Halaleikhópsins 2025 verður haldinn miðvikudaginn 30. apríl kl. 19.30 í Halanum Hátúni 12

Dagskrá aðalfundar:

  1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
  2. Inntaka nýrra félaga.
  3. Skýrsla stjórnar.
  4. Ársreikningar lagðir fram.
  5. Afgreiðsla tillagna sem borist hafa fundinum, svo sem lagabreytinga.
  6. Starfsemi næsta leikárs.
  7. Kosning stjórnarmanna, varamanna í stjórn og tveggja skoðunarmanna reikning.
  8. Önnur mál.

Kosningar:
Við viljum hvetja félaga til að gefa kost á sér í þau störf sem þarf að kjósa um. Þannig geta félagsmenn fengið betri innsýn í starfsemina.
Einnig vekjum við athygli á því að einungis skuldlausir félagar geta kosið.
Nyir félagar og gestir velkomnir.